Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1430928301.84

    Töluleg stærðfræði
    STÆR2TS05
    108
    stærðfræði
    stærðfræði, töluleg
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn er fyrir alla nemendur sem eru ekki á viðskipta- og náttúrufræðibraut. Í áfanganum er unnið áfram með hugtök stærðfræðinnar og vinnubrögð þjálfuð. Farið verður í algebru og rúmfræði, hnitarúmfræði og annars stigs jöfnur. Komið verður inn á líkindareikning og tölfræði, einfaldar slembitilraunir og tölfræðirannsóknir. Þjálfun í táknmáli stærðfræðinnar og áhersla lögð á framsetningu og rökstuðning.
    STÆR1HS05 eða 7,0 eða hærra á grunnskólaprófi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • undirstöðuhugtökum hnitarúmfræði í sléttum fleti og þekki jöfnu beinnar línu
    • undirstöðuatriðum tölfræðinnar og líkindafræðinnar
    • margliðum og geti leyst annars stigs jöfnur
    • ýmsum rúmfræðireglum um þríhyrninga og hringi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa úr og túlka tölfræðiupplýsingar sem settar eru fram með töflum og myndum
    • setja tölulegar upplýsingar fram myndrænt
    • leysa annars stigs jöfnur
    • nýta sér rúmfræðireglur
    • beita fjölbreyttum vinnubrögðum og nýta sér hjálpartæki og forrit
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • túlka tölfræðiupplýsingar
    • að beita fjölbreyttum vinnubrögðum við lausn stærðfræðilegra verkefna og þrauta, geta rætt þau við aðra og unnið með þeim að lausn þeirra og geta gert munnlega grein fyrir niðurstöðum sínum og aðferðum
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra á viðeigandi hátt
    • átta sig á og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
    • beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
    • geta fylgt og skilið röksemdafærslur í mæltu máli og í texta
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat. Vinna nemenda í kennslustundum er metin, lögð eru fyrir hlutapróf og verkefni. Lokapróf er í áfanganum.