Í áfanganum fá nemendur kennslu í grunnþáttum ljósmyndunar. Þeir kynnast vinnu með filmu í myrkrakompu þar sem þeir taka myndir með pinhole-camera, taka svart/hvítar myndir á filmu og framkalla og stækka. Nemendur læra einnig að taka myndir á stafræna ljósmyndavél, þar sem þeir læra á stillingar vélarinnar s.s. hvernig stilla á myndavélina miðað við aðstæður og myndefni og ýmsa galdra varðandi myndatökurnar með áherslu á myndbyggingu og lýsingu. Nemendur læra að vinna með ljósmyndirnar í tölvu með forritinu photoshop.
Nemendur kynnast verkum íslenskra og erlendra ljósmyndara og listamanna sem vinna með ljósmyndir .
Áhersla er lögð á að nemendur prenti út og hengi upp valdar ljósmyndir og skoði þær í samhengi og þjálfist í að ræða um þær.
TEIK1GR05 og LITA1LT05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig ljósmyndir verða til með gömlum aðferðum þ.e. með filmu og vinnu í myrkrakompu
hvernig ljósmyndir verða til með stafrænni tækni
mismunandi stillingum myndavélarinnar
hvernig vinna má með ljósmyndir í tölvu
hvernig starfandi ljósmyndarar og listamenn vinna með ljósmyndir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka ljósmyndir á einfalda og flóknari filmuvél og vinna þær í myrkrakompu
taka ljósmyndir á stafræna myndavél og vinna með þær í tölvu
taka mismunandi gerðir af ljósmyndum með þeim stillingum á myndavélinni sem við eiga hverju sinni
velja ljósmyndir og skoða þær í samhengi og ræða um þær
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna sjálfstætt með mismunandi ljósmyndatökur ...sem er metið með... verkefnum
vinna með ljósmyndirnar áfram bæði í myrkrakompu og ekki síst í tölvu ...sem er metið með... verkefnum
skjalfesta með ljósmyndum bæði vinnuferli við gerð myndverka og lokaverkin sjálf ...sem er metið með... verkefnum
meta og ræða um eigin verk og annarra ...sem er metið með... verkefnum og munnlegri framsögn
Símat þar sem öll verkefni nemenda verða metin með tilliti til tækni, fagurfræði, vinnusemi, vinnubragða og hvernig nemandi tekur tilsögn kennara.