Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1431090934.03

    Almenn líkams- og heilsurækt
    ÍÞRÓ1AÍ02(FB)
    103
    íþróttir
    Almennar íþróttir
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    FB
    Áfanginn er verklegur með markvissri fræðslu um líkams- og heilsurækt. Nemandinn spreytir sig á fjölbreyttum aðferðum þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar. Lögð er áhersla á að hann finni hreyfingu við sitt hæfi út frá getu og áhuga. Markviss fræðsla um forvarnagildi líkams- og heilsuræktar og hvatning til heilbrigðari lífshátta. Nemandi lærir að beita sér rétt við æfingar.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
    • að reglubundin líkamsrækt er grunnur að góðri líkamshreysti
    • mikilvægi upphitunar, úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
    • leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt í daglegum athöfnum
    • æfingum sem bæta líkamsstöðu og hvernig beita á líkamanum rétt
    • fjölbreytilegum aðferðum til heilsuræktar
    • mikilvægi andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar vellíðunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta
    • stunda æfingar og hreyfingu sem stuðla að bættri líkamsbeitingu
    • stunda þjálfun og hreyfingu sem hefur áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
    • beita samvinnu sem stuðlar að tillitssemi og hvatningu
    • nýta sér undirstöðuatriði líkamsbeitingar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt, leikjum og útiveru sem metið er með virkni, hugarfari og mætingu nemandans
    • gera sér grein fyrir gildi samvinnu í leik og keppni sem metið er með samskiptahæfni nemanda
    • sýna öðrum virðingu við leik, nám og störf sem metið er með hegðun og framkomu nemanda
    • glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt
    • leysa af hendi verkefni, æfingar og leiki sem viðhalda líkamshreysti sem metið er með þol- og styrktarprófi
    • nýta sér möguleika í að flétta reglubundna hreyfingu í daglegt líf og starf sem metið er með spurningalistum
    • nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni sem metið er með markmiðssetningu, dagbókarskrifum og sjálfsprófi
    Frammistöðumat nemandans fer eftir leikni hans í að vinna með öðrum og hæfni hans og leikni til að standast þol- og styrktarpróf á metnaðarfullan hátt. Virkni og áhugahvöt nemandans endurspeglast í mætingu og frammistöðu í tímum sem og sjálfstæði í vinnubrögðum.