Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1431347973.1

    Fjölíþróttir
    ÍÞRG2ÍF04
    15
    íþróttagrein
    fjölbreytt líkamsþjálfun, íþróttagreinar
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    AV
    Áfanginn samanstendur af verklegri kennslu í fjölbreyttum íþróttagreinum s.s. hópíþróttum í sal, sundi, glímu, íshokkí, krullu, klifri á klifurvegg, golfi, bandy, badminton og skíðum/bretti. Lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu og fræðslu um þætti sem íþróttamenn þurfa að hafa í huga þegar þeir stunda mismunandi íþróttir. Nemandinn fer í heimsóknir til íþróttafélaga og kynnist ýmsum greinum og prófar. Lögð verður áhersla á fjölbreytta líkamsþjálfun þar sem unnið er markvisst að því að nemandi finni hreyfingu við sitt hæfi út frá getu og áhuga.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi hreyfingar fyrir heilsuna
    • mismunandi íþróttgreinum
    • viðeigandi búnaði sem þarf til að stunda þessar íþróttagreinar
    • meginleikreglum íþróttagreinanna
    • grunnatriðum í leikfræði íþróttagreinanna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • iðka þær greinar sem kenndar eru
    • klæða sig og útbúa eftir aðstæðum og kröfum mismunandi greina
    • taka þátt í æfingum og leikjum í íþróttagreininni sem stuðla að jákvæðum samskiptum kynja
    • taka þátt í leikjum sem stuðla að samvinnu og tillitsemi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • stunda nýjar og jafnvel óhefðbundnar íþróttir
    • nýta sér mismunandi aðstæður til líkamsræktar og heilbrigðra lífshátta
    • átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan einstaklingsins
    • vinna með öðrum og vera hluti af hópi
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.