Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1431952670.33

    Skólinn í okkar höndum
    BRAG1SC01
    3
    Skólabragur
    Samvinna, heilsuefling, námstækni
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Í áfanganum er lögð áhersla á að efla sjálfsöryggi og sjálfstæði nemenda. Nemendur aðlagist vel nýju skólastigi og skólaumhverfi. Nemendur fá að kynnast þjónustu og úrræðum sem í boði eru – unnið er með hópefli, námstækni, forvarnir og heilsueflingu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Grunngildum nýrrar námsskrár
    • Námstækni og skipulagningu náms .
    • Námsframboði við skólann
    • Skólabrag og hvað í honum felst.
    • Skólareglum og mætingareglum
    • Þeirri þjónustu sem skólinn býður upp á
    • Mentorakerfi skólans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Að ræða opinskátt um sjálfan sig sem námsmann.
    • Að geta tjáð sig í ræðu og riti um sín markmið.
    • Að setja sig í spor annara.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Vinna að skapandi verkefnum í tengslum við nemendasamfélagið og nemendafélag.
    • Setja sér persónulega námsstefnu.
    • Búa til námsferil
    • Beita námstækni sér til hagsbóta
    • Taka virkan þátt í orðræðu um lífsstíl, hreyfingu, næringu og geðrækt.
    Fjölbreytt námsmat