Í áfanganum er aðaláhersla á varbúnað, vírsverleika og rafdreifiskápa. Einning er farið í raflagnir í minni húsveitum. Farið er yfir staðsetningu á búnaði og innfeldar og áfelldar lagnir, lagnaleiðir og brunaþéttingar kynntar. Farið er í reglugerðarákvæði varnarráðstafana sem varða snerti- og brunahættu. Lögð er áhersla á skilning nemanda á varbúnaði, bruna- og snertihættu. Nemandinn fær þjálfun í notkun mælitækja og lögð er áhersla á fagmannleg vinnubrögð.
RALA1RT03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mögulegum skemmdum á búnaði þegar mælitækjum er beitt
reglum um gildleika leiðara miðað við áraun og staðla sem um það gilda
varúðarráðstöfunum er varða snerti og brunahættu
mælitækjum sem notuð eru við bilanaleit
uppbyggingu minni veitna og mikilvægi efnisvals í þær
því öryggi sem felst í að hafa skipulag og þrifalegt á vinnustaðnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
mæla einangrunarbilun og spennur í veitum
leggja rör og strengi og ganga frá dreifiskáp
lesa úr uppdráttum og fyrirmælum
tengja ýmsar gerðir fjarrofa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leggja raflagnir í minni veitur
vinna eftir fyrirmælum
þekkja röð varnarráðstafana í húsveitum
ákveða vírsverleika lagna
einungramæla og finna bilun í húskerfi
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.