Í þessum áfanga er lögð áhersla á meðalstór boðskiptakerfi (loftnets-, síma- og tölvulagnakerfi). Einnig er fjallað um uppbyggingu, uppsetningu og viðhald einfaldra viðvörunarkerfa, s.s. brunaviðvörunarkerfa og þjófavarnarkerfa fyrir heimili og smærri fyrirtæki. Þá er farið yfir reglur og reglugerðir sem um þessa hluti gilda. Farið er í uppbyggingu og eiginleika helstu dreifikerfa, s.s. dreifingu sjónvarps á VHF- og UHF-rásum, örbylgju, ljósleiðara og gervihnetti. Farið verður í tæknikröfur sem gerðar eru til viðtöku og uppsetningar á framgreindum kerfum. Nýjungar í dreifingu í gegnum þá miðla sem eru í boði og farið yfir tækni við dreifingu og miðlun efnis til heimila og stofnana. Eiginleikar ljósleiðarans eru kynntir fyrir nemandanum og farið í þær kröfur sem gerðar eru til ljósleiðaralagna. Í áfanganum er einnig fjallað um reglur sem gilda um neyðarlýsingar, uppsetningar og gerðir þeirra, ásamt íhlutum, eiginleikum, hlutverki og notkunarsviði þeirra.
RAMV2ÞS05 og RALA1RT03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu íhlutum loftnetskerfa og eiginleikum þeirra
mismunandi aðferðum við teikningu minni loftnetskerfa og útfærslur á þeim
uppsetningu boðskiptalagna og ljósleiðaralagna
reglum sem gilda um sjálvirk brunaviðvörunarkerfi
reglum og aðferðum sem gilda um uppsetningu eftirlits og viðvörunarkerfa
helstu reglum og stöðlum um neyðarlýsingar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
teikna og hanna loftnetskerfi
mæla minni fjarskiptakerfi
teikna brunaviðvörunarkerfi
lesa úr uppdráttum af brunaviðvörunarkerfum
lesa úr mælingum, bæði gæði og bilanir
velja búnað og strengi í eftilits og viðvörunarkerfi
velja neyðarlýsingarbúnað eftir reglum sem um hann gilda
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna og velja búnað í minni loftnetskerfi
nýta teikningar og verklýsingar fyrir loftnetskerfi
velja efni og strengi í boðskiptalagnir (ljósleiðara og cat5)
velja búnað í brunaviðvörunarkerfi
hanna minni brunaviðvörunarkerfi og gera úttektarskýrslur
nýta reglur um sjálfvirk brunakerfi
nýta reglur og staðla um neyðarlýsingar
færa inn breytingar á uppdrætti,sem gerðar eru á kerfunum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.