Farið er í helstu hugtök og lögmál rafmagnsfræði jafnstraums. Lögð er áhersla á að nemandinn læri að nýta sér þessi lögmál við reikninga og gera prófanir á þeim með mælingum í jafnstraumsrásum. Farið er yfir mismunandi gerðir spennugjafa auk þess sem nemandinn á að þekkja helstu teiknitákn í einföldum jafnstraumsrásum.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum s.s. straumur, spenna, viðnám
teiknitáknum fyrir mæla, spennugjafa og ýmsar gerðir viðnáma
helstu lögmálum s.s. Ohms-, Kirkhhoffs- og afllögmáli
helstu forskeytum eininga s.s. milli, míkró, nanó o.s.frv.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma reikninga í einföldum jafnstraumsrásum
teikna einfaldar jafnstraumsrásir
nota fjölsviðsmæli
tengja og reikna einfaldar jafnstraumsrásir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja upp einfaldar jafnstraumsrásir eftir teikningu og framkvæma á þeim mælingar
sannprófa niðurstöður með notkun lögmála og/eða mælinga
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.