Farið er í hvernig riðstraumur verður til og hegðar sér auk helstu spennu/straum gilda í riðstraum. Farið í helstu hugtök og lögmál rafmagsfræði riðstraums. Lögð áhersla á að nemandinn nýti sér þessi lögmál til lausna á verkefnum bæði í reikningi og með mælingum. Farið er í helstu teiknitákn í riðstraumsrásum með þéttum, spólum og viðnámum. Nemandinn lærir hvað fasvik er og fær þjálfun í að reikna það, mæla og leiðrétta. Kennd er notkun helstu mælitækja í riðstraumsrásum s.s. sveiflsjá og tíðnigjafa.
RAMV1HL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu lögmálum í riðstraumsrásum svo sem spanlögmáli Faradeys og Lenz lögmáli
helstu gildum sem notuð eru svo sem toppgildi, virkt gildi, meðalgildi
teiknitáknum í span og rýmdar rásum
helstu reikningum í riðstraumsrásum
fasviki
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna einfaldar riðstraumsrásir með rýmd og spani
nota helstu mælitæki fyrir riðstraumsrásir
teikna og tengja einfaldar riðstraumsrásir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja upp einfaldar riðstraumsrásir eftir teikningum og framkvæma á þeim mælingar
reikna einfaldar riðstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með lögmálum og/eða mælingum
tengja og framkvæma mælingar á riðstraumsrásum
skrifa skýrslu um mælingar og niðurstöður þeirra
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.