Lögð er áhersla á að nemandinn fái þjálfun í reikningum á RLC – rásum varðandi riðstraumsviðnám, samviðnám, spennuföll og fasvik bæði í hliðtengdum og raðtengdum rásum. Nemandinn lærir um desebelútreikninga og notkun þeirra, helstu síur og hvernig hægt er að búa þær til úr RLC-rásum og framkvæma reikninga á þeim. Auk þess kynnist nemandinn umhverfisháðum viðnámum og táknum fyrir þau. Nemandinn framkvæmir einnig mælingar á síum og öðrum RLC – rásum bæði með hjálp mælitækja, sveiflusjár og hermiforrits.
RAMV2ÞS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig riðstraumsrásir með spólum og þéttum hegða sér við breytilega tíðni
virkni helstu sía
virkni umhverfisháðra viðnáma
desebel útreikningum og logarithmiskum kvarða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma alla helstu reikninga í rað- og hliðtengdum RLC – rásum
segja til um hvernig viðám og fasvik svona rása breytist með tíðni
tengingum og mælingar á RLC – rásum
útreikningi/hönnun á einföldum síum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja eftir teikningu og mæla í RLC – rásum bæði raðtengdum og hliðtengdum
hanna einfaldar síur með þéttum viðnámum og spólum og gera á þeim mælingar
gera mælingar á RLC – rásum yfir ákveðið tíðnisvið
setja niðurstöður fram í desebelum og í logaritmiskum kvarða
nýta sér hermiforrit til mælinga á rásum
setja niðurstöður mælinga fram í skýrsluformi
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.