Í áfanganum kynnist nemandinn samsetningu einkatölvu. Farið er í byggingarhluta tölvu og hlutverk þeirra. Gengið er frá uppsetningu á stýrikerfi og notendahugbúnaði fyrir tölvu. Áfanginn er einnig kynning á stafrænni tækni og beitingu hennar við tæknileg úrvinnsluefni. Nemandinn kynnist rökhugtökum, mismunandi talnakerfum, Boole-framsetningu og teiknistöðlum. Reikniaðferðir rökrása eru kynntar og kóðar. Nemandinn lærir að nota sannleikstöflur og bólksar-jöfnur til að skilgreina virkni rökrása.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu byggingarhlutum tölvu og hlutverkum þeirra
helstu stýrikerfum
helstu notendaforritum
helstu hugtökum stafrænnar tækni
talnakerfum sem notuð eru í stafrænni tækni
helstu reikniaðferðum rökrása
bólskum-jöfnum sem skilgreina virkni rökrása
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja saman tölvu úr byggingarhlutum
forsníða harðan disk
setja upp stýriforrit
skilgreina virkni einfaldra rökrása
setja upp helstu stýrikerfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
bera kennsl á helstu bilanaeinkenni í tölvu
leggja mat á gildi hinna ýmsu hugtaka við mat á afkastgetu tölvu
lesa virkni einfaldra rökrása
hanna rökrás út frá skilyrtri virkni
bilanagreina einfaldar rökrásir
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.