Í áfanganum kynnist nemandinn tölvunetkerfum, mismunandi gerð þeirra, margvíslegri uppbyggingu og þeim búnaði sem þau samanstanda af. Nemandinn kynnist virkni tölvuneta með því að tileinka sér netkerfistaðlana OSI og TCP/IP. Höfuðáhersla áfangans er að kenna nemandanum grunninn í vélbúnaði tölvunetkerfa, stillingar á búnaði og tengingu milli íhluta þeirra. Nemandinn lærir einnig að hanna meðalstór netkerfi og skipta stórum kerfum upp í minni.
TNTV2ST03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
íhlutum tölvunetkerfa, tilgangi þeirra og virkni
OSI og TCP/IP líkönunum
IP vistföngum
hugtökum og skammstöfunum sem notaðar eru í tölvunetkerfum
nethögun (topology) tölvulagna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota mismunandi tölvustrengja
meta hvaða nethögun hentar best við hvert tilfelli
útbúa tölvustrengi og gæðamæla þá
rekja bilanir í netsamböndum
beita fagorðaforða til að ræða um tölvunetkerfi við aðra tæknimenn
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna meðalstór tölvunetkerfi með vistföngum
velja réttan búnað við uppsetningu á tölvunetkerfi
setja upp og stilla meðalstórt tölvunetkerfi
stilla beina (routers) með grunnstillingum
finna bilanir í tölvunetkerfi
nýta áunna tækniensku sér til framdráttar og frekara náms í nýjustu tækni á þessum sviðum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.