Í áfanganum fær nemandinn þjálfun í að smíða rafeindarásir með a.m.k. 10 íhlutum. Nemandinn les teikningu frá kennara, lærir um virkni og hlutverk íhluta, smíðar rásir og beitir mælitækjum til að kanna virkni rása og átta sig á hvaða afleiðingar það hefur ef einstaka íhlutir bila. Nemandinn fær leiðsögn við að framkvæma einfalda bilanaleit með notkun mælinga.
VGRV1ML05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hlutfalli milli straums, spennu og viðnáms
breytingum sem verða á spennu ef viðnám breytist
hlutverki og virkni íhluta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lóða íhluti upp á prentplötu
Ohmmæla íhluti í rás með tilliti til annara íhluta
reikna afltöku rásarinnar
reikna strauma þar sem viðnám og spenna liggur fyrir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
teikna rafeindarás á blaði
skilja virkni einfaldra rafrása
spennumæla spennusettar rásir
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.