Í vinnustaðanámi kynnist nemandi vinnu slátrara. Námið fer fram í viðurkenndu sláturhúsi. Nemandi kynnist vinnu við deyðingu á hvers kyns sláturdýrum s.s. sauðfé, geitum, nautgripum, svínum, hrossum, alifuglum. Nemandinn kynnist því hvernig tekið er á móti sláturdýrum og þeirri ábyrgð sem hvílir á slátrurum að dýrin njóti þess aðbúnaðar sem lög og reglur kveða á um, m.a. kröfur um dýravelferð.
Nemandi kynnist því hvernig slátrari vinnur í samræmi við hættugreiningu vinnustaðarins og þær öryggis- og gæðakröfur sem gerðar eru til greinarinnar. Nemandinn kynnist grófbrytjun sláturgripa og hlutun þeirra niður í samræmi við gefna staðla til frekari vinnslu eins og krafist er hverju sinni.
Tilgangur vinnustaðanáms er að efla þekkingu, færni og skilning nema á verkþáttum námsins. Námsferilbók er til leiðsagnar í vinnustaðanáminu og er í eigu nemans. Meistari/tilsjónarmaður merkir reglulega við þá verkþætti sem nemi hefur lokið.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
deyfingu og deyðingu hvers kyns sláturdýra, þ.m.t. deyfingu, aflífun, stungu og blóðtæmingu, fláningu og afbyrstun eða fiðurlosun/fiðurreytingu, sem og innanúrtöku, snyrtingu og verkun sláturafurða
flutningi og móttöku sláturdýra að sláturhúsi
frágangi og meðferð á kjöti á öllum sláturafurðum eftir slátrun s.s. kælingu, pökkun, frystingu, söltun eða aðra geymsluhætti eftir atvikum
helmingun kjötskrokka, sögun og grófbrytjun afurða eftir gefnum stöðlum og pökkun í viðeigandi umbúðir
innihaldslýsingum og merkingum afurða
mælingu sýrustigs og kjötmati
vinnu við frágang og förgun úrgangs
vinnu í samræmi við kröfur um góða starfshætti, innra eftirlit, hreinlætis- og örverufræði, hættugreiningu, gæðastaðla og öryggiskröfur sláturhúsa kjötvinnslustöðva
kröfum um hættumat slátrara
forvörnum og viðbragðsáætlunum við óhöppum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna að deyfingu og deyðingu hvers kyns sláturdýra, þ.m.t. deyfingu, aflífun, stungu og blóðtæmingu, fláningu og afbyrstun eða fiðurlosun/fiðurreytingu, sem og innanúrtöku, snyrtingu og verkun sláturafurða
vinna að móttöku sláturdýra að sláturhúsi
vinna að helmingun kjötskrokka, sögun og grófbrytjun afurða eftir gefnum stöðlum og pökkun í viðeigandi umbúðir
vinna að frágangi og meðferð á kjöti og öllum sláturafurðum eftir slátrun s.s. kælingu, pökkun, frystingu, söltun
mæla sýrustig í kjöti, meta galla og meta kjöt
meta ástand og gæði hráefnis með hliðsjón af umbúðamerkingum, hitastigi og almennum gæðakröfum
setja réttar innihaldslýsingar og merkingar á afurðir sem fara í áframhaldandi sölu eða vinnslu
vinna við frágang og förgun úrgangs
vinna með vélar og handverkfæri sem tengjast starfinu, annast umhirðu þeirra og eftirlit
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja flutning og móttöku sláturdýra að sláturhúsi og tryggja að flutningur og móttaka sláturdýra að sláturhúsi sé í samræmi við reglur og reglugerðir um flutninga og móttöku búfjár s.s. er varðar dýravelferð, rými, öryggi, gæði, hreinlæti og sóttvarnir
vinna sjálfstætt að deyfingu og deyðingu hvers kyns sláturdýra, annast framkvæmd og stjórnun allra verkþátta s.s. deyfingu, aflífun, stungu og blóðtæmingu , fláningu, afbyrstun eða fiðurlosun/fiðurreytingu, svo og innanúrtöku, snyrtingu og verkun sláturafurða
annast frágang og meðferð á kjöti og öllum sláturafurðum eftir slátrun s.s. kælingu, pökkun, frystingu, söltun eða aðra geymsluhætti eftir atvikum og undirbýr fyrir frekari vinnslu á þann hátt að kælikeðjan rofnar ekki
annast helmingun kjötskrokka, sögun og grófbrytjun afurða eftir gefnum stöðlum og pökkun í viðeigandi umbúðir
hafa umsjón með frágangi á öllum úrgangi frá sláturhúsum og sjá til þess að frágangur og förgun úrgangs sé í samræmi við umhverfiskröfur greinarinnar, lög og reglur sem gilda um þau mál
skipuleggja verkferla með tilliti til viðfangsefna við slátrun, gera verkefnalista, forgangsraða þeim og undirbúa vinnusvæði