Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1432649820.86

    Badminton
    ÍÞRG3BA04
    21
    íþróttagrein
    badminton
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í badminton Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Einnig er lögð áhersla á að nemandi geti borið ábyrgð á hópi barna og ástundað sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
    ÍÞRF2ÞJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • leikreglum í badmintoni
    • hvernig á að leiðbeina börnum í badmintoni
    • kennslu tækniæfinga í badminton
    • skipulagningu badmintonþjálfunar
    • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í badminton
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leiðbeina byrjendum í badminton
    • nota badminton sem skólaíþrótt
    • spila badminton
    • leiðbeina og bera ábyrgð á hópi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja íþróttatíma í badminton
    • stjórna og borið ábyrgð á hópi af börnum
    • átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
    • ástunda sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun barna