Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1432650354.53

    Handknattleikur
    ÍÞRG3HA04
    23
    íþróttagrein
    handknattleikur
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í handbolta. Einnig er lögð áhersla á að nemandi geti borið ábyrgð á hópi barna og ástundað sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
    ÍÞRF2ÞJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • leikreglum í handbolta
    • hvernig á að leiðbeina börnum í handbolta
    • kennslu tækniæfinga í handbolta
    • skipulagningu handboltaþjálfunar
    • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í handbolta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leiðbeina byrjendum í handbolta
    • nota handbolta sem skólaíþrótt
    • spila handbolta
    • leiðbeina og bera ábyrgð á hópi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja íþróttatíma í handbolta
    • stjórnaog borið ábyrgð á hópi af börnum
    • átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
    • ástunda sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun barna