Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1432650791.03

    Körfuknattleikur
    ÍÞRG3KK04
    24
    íþróttagrein
    Körfuknattleikur
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur öðlast grunnfærni í körfubolta og kenndar eru reglur greinarinnar, tækniatriði og leikfræði. Nemendur eru þjálfaðir í að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði körfuknattleiks og lögð er áhersla á leikrænan og skemmtilegan leik. Einnig er lögð áhersla á að nemandi geti borið ábyrgð á hópi barna og ástundað sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun.
    ÍÞRF2ÞJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • leikreglum körfuknattleiks.
    • því hvernig á að leiðbeina börnum í körfuknattleik.
    • kennslu tækniæfinga í körfuknattleik.
    • skipulagningu körfuknattleiksþjálfunar.
    • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum körfuknattleiks.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leiðbeina byrjendum í körfuknattleik.
    • nota körfuknattleik sem skólaíþrótt.
    • spila körfuknattleik.
    • leiðbeina og bera ábyrgð á hópi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja körfuknattleiksíþróttatíma.
    • stjórnaog borið ábyrgð á hóp barna.
    • átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hóp.
    • ástunda sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun barna