Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1432651198.58

    Líkamsrækt
    ÍÞRG3LÍ04
    26
    íþróttagrein
    Líkamsrækt
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í líkamsstyrkingu. Áhersla er á mismunandi aðferðir við líkamsstyrkingu eftir aldri og hver tilgagur styrkingarinar er. Einnig er lögð áhersla á að nemandi geti borið ábyrgð á hópi barna og ástundað sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í hvernig á að byggja upp líkamsstyrk og mikilvægi hans samhliða öðrum íþróttum.
    ÍÞRF2ÞJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ýmsum aðferðum við líkamsrækt
    • hvernig á að byggja upp styrk hjá ungum íþróttamönnum
    • tækni við líkamsrækt
    • skipulagningu líkamsræktar
    • mismunandi aðferðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leiðbeina byrjendum í líkamsrækt
    • nota líkamsstyrkingu í skólaíþróttum
    • leiðbeina og bera ábyrgð á hópi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja íþróttatíma í almenni líkamsrækt
    • stjórna og borið ábyrgð á hópi af börnum
    • átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
    • ástunda sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun barna