Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur vinni með flóknari texta en þeir hafa gert hingað til. Unnið er með orðaforða m.a. tengdan daglegu lífi, ferðamennsku, menntakerfi, tækni og vísindum. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast danskri menningu. Í áfanganum er notast við ýmsa rauntexta auk bókmenntatexta. Nemendur vinna sjálfstætt að viðameiri verkefnum í formi kynninga og ritunarverkefna.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
danska menningarsvæðinu
ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska menningu
helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður sem og algengustu orðasambönd sem einkenna það
lesa fjölbreyttar gerðir texta og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð textans eða viðfangsefnisins
tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
rita margs konar texta og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
beita meginreglum danskrar málfræði og setningafræði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni
tileinka sér innihald ritaðs texta og nýta það á mismunandi hátt
lesa á milli línanna og átta sig á dýpri merkingu texta
geta tjáð sig hiklaust og tekið þátt í samræðum við ólíka viðmælendur sem hafa dönsku að móðurmáli
geta skipst á skoðunum og sett fram hugmyndir sínar af talsverðu öryggi og komið þeim kunnáttusamlega til annarra
tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem hann hefur kynnt sér
geta skrifað læsilegan texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín.