Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433804800.18

    Suðuaðferðir og suðutæki
    HLGS2MT03
    5
    Hlífðargassuða
    MIG/MAG og TIG suða
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    AV
    Í áfanganum lærir nemandinn MIG/MAG-suðu í efnisþykktum 2 – 6 mm og TIG-suðu í efnisþykktum 1 – 3 mm. Lögð er áhersla á að nemandinn öðlist grunnfærni og þekkingu á suðuaðferðum, að hann þekki mun á þeim, kostum þeirra og göllum og geti soðið stál, ryðfrítt stál og ál. Farið er yfir öryggisbúnað s.s. hlífðarfatnað og hlífar, hættur og helstu varúðarráðstafanir vegna þeirra.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við suðu á stáli, áli og ryðfríu stáli
    • hlutverki hlífðargass og réttum stillingum
    • öllum hlutum suðubyssu og leiðara fyrir MIG/MAG og TIG
    • virkni suðutækja, drifbúnaði og pólun
    • virkni viðnámsspólu í MIG/MAG og TIG suðutækjum
    • ýmsum gerðum kveikinga í MIG/MAG og TIG-suðuvélum
    • brunahættu vegna straumleiðara
    • helstu hættum og varúðarráðstöfunum vegna geislunar, hita, reyks, ósonmyndunar og eldfimra efna
    • hlífðarfatnaði og hlífum við vinnu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla búnað til suðu
    • setja rúlluvír í suðutæki
    • nota TIG- og MIG/MAG suðu til að sjóða saman hluti í ýmsum suðustöðum s.s. PA-BW, PA-FW og PF-FW
    • gegnumsjóða þunna stálplötu öðru megin frá
    • nota hlífðarfatnað og öryggisbúnað
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • stilla suðutækin, þ.e. straum, vírhraða, spennu og viðnám
    • velja rétta spíssa
    • stilla gasflæði, velja gashulsu og skaut
    • velja hlífðarbúnað og hlífar í samræmi við aðstæður
    • meta algengustu suðugalla og greina orskakir þeirra
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.