Í áfanganum er farið yfir vinnuverndarmál almennt. Fjallað er um skipulag vinnuverndar, samskipti á vinnustað, hollustuhætti, vísun í lög og reglugerðir, meðferð hættulegra efna, vinnustellingar (hreyfifræði), atvinnusjúkdóma, eldvarnir og helstu orsakir vinnuslysa. Nemandinn kynnist m.a. hugtakinu sjálfbærni og hvaða þýðingu það hefur fyrir umhverfi og atvinnulíf, merkjakerfi kranastjórnenda og verkferlum og undirbúningi þeirra.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vinnulöggjöf og ábyrgð sinni á vinnustað
mengunarvöldum í umhverfi sínu
aðbúnaði og hollustuháttum á vinnustöðum
hugtakinu sjálfbærni og þýðingu þess fyrir umhverfi og atvinnulíf
fallvarnarbúnaði og fallvörnum
merkjakerfi kranastjórnenda
undirbúningi verkferla
mikilvægi þess að inn í öllum verkferlum sé tekið mið af heilsu, umhverfi og öryggi
töflum um hífingabúnað
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota persónuhlífar og öryggisbúnað
undirbúa og skipuleggja verkferla m.t.t. heilsu, öryggis og umhverfis
velja búnað til hífinga
nota merkjakerfi kranastjórnenda
lesa styrk úr töflum og það álag sem búnaður til hífinga þolir
nota keðjutalíur við hífingar hluta að 2000 kg
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja réttan öryggisbúnað og persónuhlífar
meta þyngd hluta og áhrif þyngdarpunkts við hífingar
meta hættu sem skapast vegna fallandi hluta
tryggja öryggi á vinnusvæði á viðeigandi hátt
meta hvort verk skapi hættu fyrir umhverfi eða fólk
meta ástand á t.d. stroffum, keðjum, vírum og hífingarbúnaði
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.