Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433846557.49

    Goðafræði, málsaga og ritun
    ÍSLE2GO05
    79
    íslenska
    goðafræði, málnotkun og ritun, málsaga
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Grunnþættir: Læsi, sköpun. Í áfanganum er lögð áhersla á menningararfinn, bæði bókmenntir og sögu tungumálsins og orðaforðans. Lögð er áhersla á margs konar ritun í tengslum við gamla og nýja texta. Setningafræði er kennd í tengslum við ritun. Kennd verður meðferð heimilda og haldið áfram með byggingu ritgerða. Nemendur þjálfaðir í ritun og endursögn stuttra texta og í að flytja verkefni munnlega í tímum. Unnið með orðaforða íslenskunnar, málvöndun og málstefnu, Gylfaginning, Skáldskaparmál og Völuspá eru lesin í áfanganum og unnið með textana á margvíslegan hátt og þeir tengdir nútímanum. Skáldsaga lesin sem byggir á heimi miðalda. Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæð vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi.
    ISLE2AL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • bókmenntum og heimsmynd miðalda
    • málsögu og sögu orðaforðans
    • grunnatriðum setningafræðinnar
    • byggingu ritgerða og meðferð heimilda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og flétta saman við eigin viðhorf og ályktanir á heiðarlegan hátt
    • nýta heimildir á réttan hátt við eigin ritsmíðar
    • nýta hugtök setningafræðinnar til að efla eigin málfærni
    • flytja af öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknum málefnum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja nútímaverk við fornan menningararf, menningarheim og eigin veruleika
    • styrkja eigin málfærni og nám í erlendum tungumálum, t.d. með því að nýta hugtök setningafræðinnar
    • skrifa heimildaritgerð
    • skilja og ræða mikilvægi tungumáls fyrir samfélag og þjóðir