Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433851446.96

    Vélstjórn 1
    VÉLS1GV05
    3
    Vélstjórn
    Grunnþættir véla og vélkerfa
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    AV
    Í áfanganum öðlast nemandinn þekkingu á uppbyggingu og virkni mismunandi vélagerða, þar sem áhersla er lögð á virkni, eiginleika og notkun bulluvéla. Einnig er farið yfir íhluti og einingar sem brunavél samanstendur af og hlutverk þeirra. Þá er fjallað um véla- og lagnakerfi sem þjóna brunavélum. Nemandinn þjálfast í notkun véla og vélakerfa, og lögð er áhersla á að hann sé fær um að þjóna og stjórna vélbúnaði í minni skipum. Farið er yfir öryggismál, umgengni um vélar og verkstæði ásamt hættum sem stafa af vélum og vélbúnaði.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • vinnuhring dísil- og Ottómótors
    • flokkun aflvéla eftir gerð, uppbyggingu og eldsneyti
    • grundvallarhugmyndum að baki bulluvélinni, byggingu hennar og helstu íhlutum
    • mismunandi uppbyggingu, notkun og eiginleikum hraðgengra og hæggengra bulluvéla
    • mismunandi aðstreymi eldsneytis og lofts í Ottóvél og dísilvél
    • þeim kerfum sem þjóna vélum skipa, hlutverki þeirra og uppbyggingu í minni skipum
    • kæliþörf brunavéla
    • uppbyggingu á eldsneytisdælum og vinnumáta þeirra
    • ræsingu bulluvéla, þ.m.t. mismunandi ræsiloftskerfa véla og þeim reglum sem um þau kerfi gilda
    • umhirðu véla og búnaðar í vélarrúmi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nafngreina helstu íhluti vélar og lýsa hlutverki þeirra
    • lesa úr vélateikningum
    • nota helstu handverkfæri á réttan hátt
    • ganga um vélar og verkstæði með tilliti til hreinlætis og öryggis
    • undirbúa dísilvél fyrir gangsetningu og gangsetja hana
    • ganga frá vél og vélarrúmi eftir stöðvun og gera vélarrúm frostklárt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • teikna upp vinnuhring tvígengis og fjórgengis dísil- og Ottóvéla
    • rekja og teikna upp helstu vélakerfi
    • stunda vinnu á vélaverkstæði m.t.t. umgengni og öryggismála
    • undirbúa vél fyrir ræsingu og ræsa hana
    • útskýra bæði ytri og innri kælibúnað véla
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.