Áfanginn er bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í körfuknattleik. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Einnig er lögð áhersla á að nemandi geti borið ábyrgð á hópi barna og ástundað sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
ÍÞRF2ÞJ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
leikreglum í körfuknattleik
hvernig á að leiðbeina börnum í körfuknattleik
kennslu tækniæfinga í körfuknattleik
skipulagningu körfuknattleiksþjálfunar
fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í körfuknattleik.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leiðbeina byrjendum í körfuknattleik
nota körfuknattleik sem skólaíþrótt
spila körfuknattleik
leiðbeina og bera ábyrgð á hópi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja íþróttatíma í körfuknattleik
stjórna og borið ábyrgð á hópi af börnum
átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi
ástunda sjálfstæð vinnubrögð við þjálfun barna.
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.