Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434215463.94

    Suðuaðferðir
    RAFS1SE03(AV)
    2
    rafsuða
    efni, suðuaðferð, suðuvírar
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    AV
    Í áfanganum lærir nemandinn um helstu suðuaðferðir, efni og suðuvíra. Hann öðlast færni til að meta aðstæður til rafsuðu og lærir hvernig gæta ber fyllsta öryggis við rafsuðu. Nemandinn fær þjálfun í að sjóða plötur í öllum suðustöðum með pinnasuðu, samkvæmt staðlinum ÍST EN 287-1. Nemandinn lærir að skrá grunnatriði suðuferlislýsingar. Færni nemandans miðast við kverksuðu og grunnatriði suðuferlis og skal hann ná suðugæðum í flokki C samkvæmt ÍST EN 25 817.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • suðu með rið- og jafnstraum
    • suðu með plús- og mínuspól
    • helstu suðuaðferðum, afköstum þeirra, hagkvæmni og takmörkunum við mismunandi efnisþykkt
    • eiginleikum mismunandi aðferða, s.s. styrk þeirra og hættu á suðugöllum
    • suðuaðferðum sem henta hverju verki fyrir sig
    • gildi ljósbogaspennu og tómgangsspennu
    • staðli um mat á suðum og suðugalla
    • staðli um suðustöður og hæfnisvottun suðumanna
    • staðli um merkingu rafsuðuvíra
    • staðli um merkingu stáls, t.d. ÍST EN 22 553
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla búnað til suðu
    • sjóða saman hluti í ýmsum suðustöðum
    • stilla suðutæki, þ.e. straum, spennu og viðnám
    • velja réttan suðuvír eftir verkefnum
    • sjóða mismunandi legglengd og a-mál með einum eða fleiri strengjum
    • stilla suðuvél, velja suðuvíra og sjóða samkvæmt suðuferli
    • rafsjóða lárétt á plötu beina strengi og með hliðarhreyfingum
    • rafsjóða kverksuður í PB- og PF- suðustöðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja hagkvæmar og öruggar suðuaðferðir við mismunandi verk
    • útskýra staðlaðar merkingar pinnasuðuvíra
    • teikna upp rafsuðutækið og merkja inn stillingar og leiðara
    • meta algengustu suðugalla og ástæður þess að þeir myndast
    • meta suðugæði samkvæmt stöðluðum kröfum um útlit
    • flokka suðu í gæðaflokka
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.