Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434619227.28

    Íþróttagrein-Blak
    ÍÞRG1BL02
    23
    íþróttagrein
    blak
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum læra nemendur undirstöðuatriði í blaki. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur í blaki. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greinunum. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að íþróttirnar sé greindar sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Nemendur auki eigin getu í íþróttinni. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í blaki í samráði við kennara
    • leikfræði
    • skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
    • leikreglum
    • helstu þjálfunaraðferðum
    • mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í blaki
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur
    • beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
    • stunda blak og miðla því frá sér
    • þjálfun í blaki
    • sýna og framkvæma ýmsar æfingar sem tengjast íþróttinni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta leiðbeint ýmsum aldurshópum í blaki í samráið við kennara
    • geta beitt fjölbreyttum aðferðum við þjálfun
    • stunda blakíþróttina