Ræð föll, aðfellur, rótarjöfnur, brotajöfnur, algildisjöfnur, jöfnur á 2. stigs formi, ójöfnur
og formerkjatöflur. Samsett föll, andhverf föll, ummyndanir (hliðranir, speglanir, stríkkanir).
Runur, jafnmunarunur, kvótarunur, vaxtareikningur, jafnmunaraðir og kvótaraðir.
STÆR2GN05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ræðum föllum og aðfellum
sönnunum á helstu reglum í námsefninu
veldareglum og brotnum veldisvísum
lausn rótarjafna, brotajafna og algildisjafna
lausn á ýmsum tegundum ójafna
ummyndunum, s.s. hliðrunum, speglunum og stríkkunum
runum og röðum, jafnmunarunum og kvótarunum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leysa ýmsar tegundir jafna og ójafna
meðhöndla ýmis föll, andhverfur og samsetningar falla
nota summumerki og meðhöndla runur og raðir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
átta sig á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausn verkefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur