Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434638858.63

    Fjölmiðlar og lífsstíll
    DANS2FJ05
    56
    danska
    Fjölmiðlar og lífstíll
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að efla hjá nemendanum alla færniþætti tungumálsins, að efla sjálfsöryggi hans og tjáningu á eigin hugsunum, svo og sjálfstæði hans og vinnubrögð. Unnið er markvisst að því að auka vitund nemandans um hvernig maður lærir tungumál, hvað þarf að kunna til þess að kunna tungumál og aðferðir til þess að tileinka sér nýjan orðaforða. Tal: Áhersla er lögð á að nemendur þjálfist í réttum framburði tungumálsins, í að tala tvö og tvö saman, í að kynna verkefni sem búið er að vinna með, svara fyrirspurnum og færa rök fyrir máli sínu. Hlustun: Nemendur vinna með ýmiss konar hlustunarverkefni tengd lífstíl t.d. af neti. Ritun: Nemendur vinna með nokkrar textagerðir hvort heldur sem um er að ræða skapandi skrif eða stýrð verkefni eins og t.d endursagnir, gagnrýni og frásagnir. Orðaforði: Nemendur vinna með orðaforða í tengslum við þemu sem unnið er með hverju sinni; jafnrétti, lýðræði, sköpun, velferð, hreyfingu, sjálfbærni, menntun og heilsu. Lestur: Nemendur lesa eina skáldsögu, nokkrar smásögur og ýmiss konar rauntexta.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu málvenjum í ritaðri dönsku
    • dönsku samfélagi og menningarlífi
    • völdum bókmenntatextum jafnt sem rauntextum
    • orðaforða sem tengist jafnrétti, lýðræði, sköpun, velferð, hreyfingu, sjálfbærni, menntun og heilsu
    • tali tveggja Dana um efni sem búið er að vinna með
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita gagnrýninni hugsun í ræðu og riti og láta skoðanir koma fram á skýran hátt þegar er unnið með eigið áhugasvið
    • beita á markvissan hátt viðeigandi hjálpargögnum við frágang ritsmíða
    • nýta málfræðilegar upplýsingar til að efla eigin málfærni skilja og nota algeng stílbrögð í ritmáli
    • nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og flétta saman við eigin viðhorf og ályktanir
    • flytja af nokkru öryggi verkefni fyrir kennara og nemendur í smærri hópum
    • lesa sér til gagns og gamans hæfilega þung bókmenntaverk jafnt sem rauntexta og fjalla um inntak þeirra skriflega
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið
    • styrkja eigin málfærni, t.d. með því að nýta málfræðilegar upplýsingar
    • beita skýru og lýtalausu máli í ræðu og riti
    • taka þátt í umræðum, færa rök fyrir máli sínu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
    • túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
    Símat ásamt lokaprófi sem þarf að standast. Símat byggir á fjölbreyttu námsmati í tengslum við verkefnavinnu og þemavinnu, einnig leiðsagnarmati, jafningjamati, smærri prófum og könnunum. Matið tekur til allra færniþátta, þ.e. hlustunar, tals, ritunar og lesturs.