Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434703139.14

    Grunnáfangi B
    FRAN1BB05
    35
    franska
    Framhaldsáfangi
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun, þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu frönskumælandi landa. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Til að æfa þessi atriði geta eftirfarandi atriði legið til grundvallar í kennslunni: Stuttar frásagnir, hvað fólk gerir í fríi eða á ferðalögum, póstkort og stutt bréf, borgarlíf og að lýsa borg og staðsetningu borga, að vísa til vegar, að sinna erindum í borg, áhugaverðir staðir, helstu byggingar og staðsetning þeirra. Aðrir efnisþættir geta verið menningarviðburðir, persónulýsingar, þ.e. útlit og persónuleiki, líkaminn, heilsa og lifnaðarhættir, tómstundir og áhugamál svo og matur, matarvenjur, veitingastaðir, matseðlar og innkaup. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig sem mest á frönsku í töluðu og rituðu máli. Einnig er lögð áhersla á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    • mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál og þekkja samskiptavenjur
    • grundvallarþáttum málkerfisins
    • formgerð og byggingu texta og mismuni á töluðu og rituðu máli
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
    • lesa ýmiss konar texta um kunnugleg efni og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
    • bregðast við spurningum um efni sem hann þekkir og beita kurteisisvenjum og hljómfalli við hæfi
    • beita þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    • skrifa einfaldan texta um efni sem hann þekkir og nota viðeigandi málfar
    • fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi sínu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá sig um hugðarefni sín og áhugamál
    • tjá sig um liðna atburði
    • miðla efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á
    • tjá skoðanir og tilfinningar
    • takast á við kunnglegar aðstæður í almennum samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
    • lesa texta af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína