Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434703590.87

    Grunnáfangi C
    FRAN1CC05
    36
    franska
    Franska 3
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Viðfangsefni undanfaranna eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun, þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu frönskumælandi landa. Orðaforðinn er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Til að æfa þessi atriði geta eftirfarandi efnisþættir legið til grundvallar: Fólk, þ.e. persónuleiki og útlit, líf þess og daglegar athafnir í þátið, nútíð og framtíð. Aðrir efnisþættir geta verið nám og störf, stutt kynning á skólakerfi viðkomandi landa, nám erlendis og að sækja um vinnu, svo og fjölmiðlar, m.a. kynning á útvarpi, sjónvarpi, dagblöðum og tímaritum frönskumælandi landa. Myndefni og tónlist er fléttað inn í kennslu eftir föngum. Samhliða vinnu í aðalkennslubók, lesa nemendur einfalda skáldsögu og leysa ýmis verkefni út frá henni. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig sem mest á frönsku í töluðu og rituðu máli. Einnig er lögð áhersla á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.
    FRAN1BB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    • mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál og þekkja samskiptavenjur
    • grundvallarþáttum málkerfisins
    • formgerð og byggingu texta og mismuninum á töluðu og rituðu máli
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
    • lesa ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um kunnugleg efni og beita viðeigandi lestraraðferðum eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
    • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
    • beita orðaforða á skýran og sem réttastan hátt hvað varðar málvenjur, framburð, áherslur og hljómfall
    • skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og nota viðeigandi málfar
    • fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi sínu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fylgjast með frásögnum og erindum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er kunnuglegt
    • afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í náminu
    • tileinka sér aðalatriðin í stuttum tímarits- eða blaðagreinum og geta dregið ályktanir af því sem hann les
    • lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína
    • takast á við margvíslegar aðstæður í almennum samskiptum, beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum og halda samtali gangandi
    • miðla eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu, vonum og væntingum
    • útskýra og rökstyðja ákvarðanir og fyrirætlanir sem og gera málamiðlanir
    • miðla efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á
    • skrifa um atburði, ímyndaða og raunverulega
    • skrifa samantekt byggða á tilteknu efni, s.s. kvikmynd eða blaðagrein
    • skrifa um hugðarefni sín og áhugamál