Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434970272.46

    Berlínaráfangi
    ÞÝSK2BE05
    24
    þýska
    berlínaráfangi
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum undirbúa nemendur nokkurra daga Berlínarferð. Þeir vinna verkefni um merkisstaði í borginni, lesa texta, horfa á myndefni og vinna verkefni tengd Berlín fyrir ferðina, í ferðinni og eftir að heim er komið. Hluti af vinnunni fyrir ferðina felst í upprifjun á orðaforða og málnotkun með áherslu á dagleg samskipti. Gerðar eru strangar kröfur um mætingu og verkefnaskil. Í ferðinni eru heimsótt söfn og ýmsir af þekktustu stöðum borgarinnar undir leiðsögn kennara og/eða leiðsögumanns. Nemendur áfangans greiða allan kostnað við ferðina.
    ÞÝSK1ÞC05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • staðháttum, mannlífi og menningu í Berlín
    • ólíkum textagerðum, s.s. blaðagreinum, textum á netinu, kvikmyndum og hlustunarefni
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
    • notkun þýsku til að mæta markmiðum áfangans bæði munnlega og skriflega
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • afla sér hagnýtra upplýsinga, taka þátt í samræðum og skilja talað mál í algengum raunverulegum aðstæðum í daglegu lífi
    • lesa margs konar gerðir texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
    • segja frá á skýran hátt í nútíð og liðinni tíð og halda stuttar kynningar á undirbúnu efni með því að beita framburði og málnotkun á sem réttastan hátt
    • skrifa samfelldan texta, t.d. gera samantekt um tiltekið viðfangsefni og tjá sig um eigin upplifun og skoðanir
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn, svo sem orðabækur, við upplýsingaöflun og ritun texta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega, um efni sem hann hefur kynnt sér og tjá eigin skoðanir og persónulega reynslu
    • tjá sig á þýsku við ýmsar aðstæður í almennum samskiptum og leysa úr málum sem upp geta komið
    • tileinka sér aðalatriðin í samtölum og frásögnum
    • tileinka sér efni mismunandi texta
    • geta metið eigið vinnuframlag og annarra
    • tileinka sér jákvætt viðhorf til Þýskalands og þýskunnar og hafa trú á eigin kunnáttu í faginu.
    Áfanginn er símatsáfangi og byggir matið m.a. á skriflegum og munnlegum verkefnum, munnlegu prófi, mætingu og ástundun í kennslustundum og virkni og hegðun í Berlínarferðinni.