Í áfanganum er fjallað um mismunandi tegundir og sérkenni sýkla. Fjallað er um byggingu sýkla, umhverfisþætti sem móta útbreiðslu sýkla, smitleiðir, helstu flokka smitsjúkdóma ásamt sýklalyfjum. Farið er í grundvallaratriði í sértækum og almennum vörnum líkamans gegn sýklum og fjallað um hlutverk ónæmiskerfisins. Fjallað er um smitgát og reglugerðir um smitvarnir. Farið er í grunnþjálfun við meðferð og ræktun sýkla í tilraunastofu og skýrslugerð.
SJÚK2MS05, HBFR1HH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögu og þróun sýklafræðinnar
mismunandi tegundum sýkla og sérkennum þeirra
helstu flokkum smitsjúkdóma
mismunandi aðferðum við ræktun og greiningu sýkla
helstu flokkum sýklalyfja, sérhæfðra og ósérhæfðra og verkun þeirra
aðferðum við dauð- og sótthreinsun og takmörkunum þeirra
helstu flokkum sýklalyfja, sérhæfðra og ósérhæfðra og verkun þeirra
grundvallaratriðum í hlutverki ónæmiskerfisins og helstu afleiðingum ónæmisröskunar
mismunandi tegundum bóluefna og verkun þeirra
almennum reglum og vinnubrögðum um smitgát, smitvarnir og mikilvægi handþvottar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota algeng fræðileg hugtök sem tengjast efni áfangans
tengja mismunandi umhverfisaðstæður við útbreiðslu smitsjúkdóma
þvo sér um hendur á réttan hátt
skrifa skýrslur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra löskunaráhrif sýkla á mannslíkama
útskýra mismunandi smithæfni sýkla
útskýra smitgát og varnir í tengslum við smitsjúkdóma
forgangsraða og nýta þekkingu sína í sýklafræði í sérhæfðu starfi
miðla þekkingu um sýkla í leik og starfi á fjölbreyttan og jákvæðan hátt
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.