Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434973731.08

    Verknám á hjúkrunaheimili eða öldrunarlækningadeild
    VINN3ÖH08
    9
    Verknám
    öldrunarhjúkrun
    Samþykkt af skóla
    3
    8
    AV
    Vinnustaðanámið/verknámið fer fram á öldrunarlækningadeildum eða hjúkrunarheimilum. Kennari áfangans, sjúkraliði/leiðbeinandi og deildarstjóri bera sameiginlega ábyrgð á verklegu námi sjúkraliðanema. Nemandinn fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf sjúkraliða. Í vinnustaðanáminu fær nemandinn tækifæri til þess að sýna aukið sjálfstæði við skipulagningu hjúkrunarstarfa og við mat á hjúkrunarþörfum skjólstæðinga, jafnframt að benda á lausnir á þeim hjúkrunarviðfangsefnum sem við eiga á vinnustaðnum. Í upphafi tímabils setur nemandinn sér persónuleg og fagleg markmið um verknámið. Á meðan á verknámi stendur skal nemandinn fylla út gátlista og ferilbók um unna verkþætti.
    VINN2LS08
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • athöfnum daglegs lífs (ADL) við umönnun aldraðra
    • helstu þáttum sem hafa áhrif á heilsu og lífsgæði aldraðra
    • forvörnum og slysagildrum í umhverfi aldraðra
    • fylgikvillum rúmlegu
    • helstu hjálpartækjum sem notuð eru í hjúkrun aldraðra
    • faglegri umhyggju og samskiptum í hjúkrunarstörfum
    • mikilvægi eftirlits og mats á líkamlegu og andlegu ástandi skjólstæðinga
    • mælitækjum og öðrum hjúkrunargögnum sem eru notuð í hjúkrun aldraðra
    • skráningu hjúkrunar
    • sjálfsákvörðunarrétti og réttindum aldraðra samkvæmt lögum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meta sjálfsbjargargetu og þarfir aldraðra í athöfnum daglegs lífs
    • sýna öldruðum virðingu og faglega umhyggju
    • mæla og skrá algengar athuganir
    • nota helstu hjálpartæki og hjúkrunargögn á viðeigandi hátt
    • taka þátt í þverfaglegri samvinnu heilbrigðisstétta
    • forgangsraða eigin störfum
    • vinna samkvæmt hjúkrunarferli
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja viðeigandi hjúkrunarmeðferð hverju sinni og rökstyðja hana
    • virða og rökstyðja mikilvægi þagnarskyldu og mikilvægi trúnaðar
    • sýna færni í samskiptum við aldraða, aðstandendur þeirra og samstarfsfólk
    • sýna faglega umhyggju í hjúkrun
    • leggja sitt að mörkum í þverfaglegri samvinnu
    • hjúkra öldruðum á heildrænan og faglegan hátt
    • útskýra mikilvægi þagnarskyldu og réttindi aldraðra
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.