Markmið áfangans er að kynna fyrir nemendum nám í húsasmíði og skyldum byggingagreinum þannig að þeir þekki grunnnám byggingargreina auk þeirra námsleiða sem því tengist. Nemendum er kennt að nota ýmis verkfæri sem notuð eru í trésmíði og hvaða verkfæri skal velja út frá þeim verkum sem verið er að vinna að. Þá er einnig farið í vinnuvernd og hvað ber að varast við notkun tækja og áhalda í trésmíði.
Hafa lokið grunnskóla
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig iðnnám í byggingagreinum er uppbyggt
notkunarmöguleikum verkfæra og tækja
mælingum og yfirfærsla á þeim á vinnslustykki
þeim hættum sem geta skapast við ranga meðhöndlun verkfæra og tækja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja viðeigandi verkfæri til einfaldra verka í smíði
lesa út út teikningu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna með ýmis handverkfæri og rafmagnsverkfæri sem tilheyra trésmíði
smíða einfalda hluti úr tré eftir teikningu
Námsmat skal fara fram eftir eftirfarandi viðmiðum. Virkni í tímum,
samvinna með öðrum nemendum, vinnubrögð við smíði.