Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1435928275.88

    Íþróttir: Skvass
    ÍÞRÓ1SV01(FB)
    121
    íþróttir
    Skvass
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    FB
    Áfanginn er verklegur með markvissri fræðslu um skvass/veggtennis. Nemandinn spreytir sig á fjölbreyttum aðferðum þol-, styrktar- og liðleika. Lögð er áhersla á að nemandi auki færni sína í greininni. Markviss fræðsla um forvarnagildi líkams- og heilsuræktar og hvatning til heilbrigðari lífshátta. Nemandi lærir að beita sér rétt við æfingar.
    ÍÞRÓ1AÍ02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • reglum íþróttagreinarinnar.
    • undirstöðutækni íþróttagreinarinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • geta leikið íþróttina sér til ánægju og heilsubótar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt, leikjum og keppni sem metið er með virkni, hugarfari og mætingu nemandans
    • gera sér grein fyrir gildi samvinnu sem metið er með samskiptahæfni nemanda
    • sýna öðrum virðingu við leik, nám og störf sem metið er með hegðun og framkomu nemanda.
    • glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt
    Byggist á virkni og mætingu nemandans. Einnig frammistöðu í tímum og sjálfstæði í vinnubrögðum.