Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1435928866.5

    Íþróttir: Blak
    ÍÞRÓ1BL01(FB)
    116
    íþróttir
    blak
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    FB
    Áfanginn er verklegur með markvissri fræðslu um blak. Nemandinn spreytir sig á fjölbreyttum aðferðum þol-, styrktar- og liðleika. Lögð er áhersla á að nemandi auki færni sína í greininni. Markviss fræðsla um forvarnagildi líkams- og heilsuræktar og hvatning til heilbrigðari lífshátta. Nemandi lærir að beita sér rétt við æfingar.
    ÍÞRÓ1AÍ02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • reglum íþróttagreinarinnar.
    • undirstöðutækni íþróttagreinarinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • geta leikið íþróttina sér til ánægju og heilsubótar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt og leikjum sem metið er með virkni, hugarfari og mætingu nemandans
    • gera sér grein fyrir gildi samvinnu í leik og keppni sem metið er með samskiptahæfni nemanda
    • sýna öðrum virðingu við leik, nám og störf sem metið er með hegðun og framkomu nemanda
    • glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt.
    Byggist á virkni og mætingu nemandans. Einnig frammistöðu í tímum og sjálfstæði í vinnubrögðum.