Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436216848.9

    Raflagnir grunndeildar rafiðna D
    RAFL3GD03
    4
    Raflagnir og efnisfræði rafiðna
    Grunndeild D
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Í þessum áfanga er lögð áhersla á tengingar og efnisval á meðalstórum boðskiptakerfum s.s. tölvukerfi, símalagnir, dyrasímakerfi, loftnetskerfi og ljósleiðara. Einnig verða tengd brunakerfi bæði Analog og rásastýrð. Gerðar verða mælingar og farið í bilanarleit í þessum kerfum.
    RAFL2GC03 Raflagnir grunndeildar rafiðna C
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Lagningu bruna og boðskiptalagna.
    • Kröfum um frágang á köplum í rennum, bökkum og stigum.
    • Uppröðun í tengiskápa.
    • Mismunandi gerðum kapla eftir aðstæðum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Tengja boðskiptalagnir við krosstengibretti (patcpanil) og annan endabúnað.
    • Leggja og tengja tölvu, síma, hljóð, mynd og loftnetslagnir á fagmannlegan hátt.
    • Setja upp og tengja mismunandi brunakerfi.
    • Finna út bilanir og gera við þær
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Tengja loftnetskerfi og gera mælingarskýrslu.
    • Tengja dyrasímakerfi og mæla út bilanir.
    • Tengja boðskiptalagnir og krosstengibretti.
    • Gera mælingarskýrslu og útlitsmynd af skáp.
    • Geta valið búnað í ljósleiðarakerfi og umgengist búnaðinn af þekkingu.
    • Ganga frá lögnum að brunakerfum og viðverukerfum.
    • Tengja stjórnstöðvar brunakerfa.
    Verkefnavinna og próf. Lámarkseinkunn í áfanganum er 5.