Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436217871.15

    Rafeindatækni og mælingar grunndeildar A
    RATM2GA05
    4
    Rafeindatækni og mælingar
    Grunndeild A
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn fjallar um hálfleiðara. Þá sérstaklega helstu gerðir af díóðum (tvistum), virkni þeirra og notkunarmöguleika. Farið er í hvernig nota má díóður í afriðun og kenndar nokkrar leiðir til að umbreyta AC í DC. Einnig er farið í grunnvirkni transistors og hvernig hann er forspenntur og farið í DC- reikninga transistors. Gert er ráð fyrir að nemendur læri einnig á helstu mælitæki svo sem fjölsviðsmæli og sveiflusjá auk þess að nota hermiforrit við mælingar á rásum.
    RAFM 1 GA 05 Rafmagnsfræði og mælingar grunndeildar A
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Teiknitáknum díóða og Bjt transistora.
    • Virkni díóða og Bjt transistora.
    • Helstu gerum afriðla og virkni þeirra.
    • Í hvað þessir íhlutir eru helst notaðir.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Reikna einfaldar rásir með díóðum og transistorum.
    • Reikna út DC spennu á mismunandi afriðlum.
    • Teikna einfaldar rafeindarásir.
    • Notkun helstu mælitækja sem notuð eru í rafeindatækni.
    • Nota hermiforrit til mælinga á rafeindarásum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Hanna einfaldar rafeindarásir með díóðum og transistorum.
    • Gera mælingar á þessum rásum og geta reiknað þær til samanburðar á mældum niðurstöðum.
    • Geta skilað af sér skýrslu um mælingar á rásum.
    • Geta framkvæmt mælingar til að ganga úr skugga um hvort íhlutir eru í lagi eða ekki.
    Gert er ráð fyrir að námsmat sé margþætt þannig að hægt sé að prófa skilning á efni, reikninga, mælingar og skýrslur.