Viðfangsefni áfangans eru þrek-, kraft- og þolþjálfun auk þess sem nemendur kynnast nokkrum greinum frjálsra íþrótta. Nemendur stunda tvær æfingar á viku undir handleiðslu kennara, vinna ýmis bókleg verkefni og kynna sér efni á vefnum samkvæmt fyrirmælum kennara.
ÍÞRF2ÞJ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
hvernig hægt er að bæta þrek, kraft og þol með skipulögðum æfingum
grunnreglum nokkurra greina frjálsra íþrótta
grunntækniatriðum nokkurra frjálsíþróttagreina við það að iðka þær
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja og framkvæma góða upphitun til undirbúnings fyrir æfingu
útbúa eigin æfingaáætlun til að bæta þrek, kraft og þol út frá líkamlegu formi og getu viðkomandi
útfæra og framkvæma grunntækniatriði nokkur frjálsíþróttagreina
fara eftir settum reglum við útfærslu nokkurra frjálsíþróttagreina
ræða um viðfangsefnin á faglegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúa og stjórna eigin upphitun
útbúa eigin æfingaáætlanir til að bæta þrek, þol og kraft
meta mikilvægi þess að finna sér hreyfingu sem viðkomandi hefur áhuga á
halda sér í góðu líkamlegu formi
geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.