Viðfangsefni áfangans eru þrek-, kraft- og tækniþjálfun þar sem sérstök áhersla er lögð á kastgreinar. Farið verður yfir keppnisreglur kastgreina sem og þær reglur sem gilda varðandi mælingar auk þess nemendur sjá um framkvæmd kastmóts.
ÍÞRF2ÞJ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
hvernig hægt er að bæta þrek, kraft og tækni með skipulögðum æfingum
grunnreglum helstu kastgreina frjálsra íþrótta
grunntækniatriðum í kúluvarpi, kringlu- og spjótkasti við það að iðka þær greinar
reglum varðandi mælingar í nokkrum greinum frjálsra íþrótta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja og framkvæma góða upphitun til undirbúnings fyrir æfingu og keppni í kastgreinum
útfæra og framkvæma grunntækniatriði helstu kastgreina
útbúa einfalda æfingaáætlun í helstu kastgreinum út frá líkamlegu formi og getu viðkomandi
mæla lengdir samkvæmt gildandi reglum í nokkrum kastgreinum
fara eftir gildandi reglum í kastgreinum
ræða um viðfangsefnin á faglegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja og stjórna eigin upphitun
meta mikilvægi þess að finna sér hreyfingu sem viðkomandi hefur áhuga á
halda sér í góðu líkamlegu formi
starfa við frjálsíþróttamót
geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.