Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1438791577.96

    Knattspyrnuakademía 02
    KNAT3KÆ02
    18
    knattspyrna
    Knattspyrnuæfingar
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    Viðfangsefni áfangans er knattspyrna og eru kennslutímarnir að mestu verklegir. Lesefni, myndbönd o.fl. tengt viðfangsefninu verður sett á moodle og nemendur vinna fjölbreytt verkefni (einstaklings, hópa, umræðuþræðir o.fl.). Í áfanganum verður farið í a.m.k. eina æfinga- og/eða keppnisferð til Akureyrar. Í áfanganum verður lögð sérstök áhersla á eftirfarandi tækniatriði, þ.e. gabbhreyfingar, skot og spil í fámennum liðum.
    ÍÞRF2ÞJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
    • reglum knattspyrnunnar
    • hvernig tækniatriði knattspyrnunnar eru þjálfuð með mismunandi erfiðleikastigum, þ.e. frá einföldum æfingum til flókinna æfinga
    • nýtingu spils í fámennum liðum til að þjálfa tækni- og leikfræðileg atriði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • framkvæma góða og skipulagði upphitun til undirbúnings fyrir æfingu og keppni
    • útfæra og framkvæma tækniatriði knattspyrnunnar, allt frá einföldum til flókinna atriða
    • meta knattspyrnureglurnar við að horfa á kappleiki og dæma hjá samnemendum
    • meta getu iðkenda til að velja rétt erfiðleikastig æfinga til að þjálfa tækniatriði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • bæta sig sem knattspyrnumaður
    • meta og velja réttar æfingar til að þjálfa ákveðin tækni- og leikfræðileg atriði
    • meta og velja spilaform í fámennum liðum til að þjálfa mismunandi tækni- og leikfræðileg atriði
    • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.