Í áfanganum halda nemendur áfram að þróa aðferðir sinar í hugmyndavinnu og er sérstök áhersla lögð á að kanna fjölbreyttar leiðir til útfærslu og mismunandi myndræna miðla. Höfðað er til hugmyndaauðgi nemenda og er áhersla lögð á sjálfstæði í vinnubrögðum. Nemendur kynnast vinnuferlinu hjá starfandi listamönnum og hönnuðum.
HUGM2RS01
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fjölbreyttum möguleikum á útfærslu hugmyndar
mismunandi áhrifum ólíkra myndmiðla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að þróa hugmyndir sínar áfram og vinna úr þeim á sjálfstæðan hátt
setja hugmyndir sínar í samhengi við umfjöllunarefni hverju sinni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
dýpka vinnuferli sitt með markvissri skissuvinnu
útfæra hugmynd þannig að úr verði sjálfstætt verk
nýta sér mismunandi aðferðir til þess að örva flæði hugmynda, bæta úrvinnslu og persónuleg efnistök