Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1443101257.03

    Upplýsingatækni á framhaldsskólabraut I
    UPPT1UA05(FB)
    18
    upplýsingatækni
    Upplýsingatækni og tölvunotkun
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    FB
    Í áfanganum kynnast nemendur og læra að nota fjölbreyttan hugbúnað og tæki til samskipta og vinnu með upplýsingar og gögn á margvíslegu formi við lausn og framsetningu viðfangsefna í námi sínu. Ábyrgð og færni í vinnu með gögn af ýmsum toga ásamt færni í samskiptum, meðferð upplýsinga, sköpun og miðlun nýrrar þekkingar. Nemendur öðlist hæfni í meðferð heimilda og virði höfundarétt. Örugg netsamskipti og siðferði á Netinu. Í áfanganum vinna nemendur með fjölbreytt verkefni sem reyna á sköpun og ímyndunarafl. Þeir læra að setja fram texta á skýran og læsilegan hátt. Í framsetningarforritum búa þeir til glærukynningu um sig sjálfa og kynna fyrir hópnum. Í ritvinnslu vinna þeir með texta af ýmsum toga og móta hann. Þeir setja upp ritgerðir með efnisyfirliti, töflu- og myndayfirliti. Markmið námsins er að stuðla að færni nemenda í fjölbreyttu náms- og starfsumhverfi með hjálp upplýsingatækninnar. Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum og lögð áhersla á að nemendur verði færir í að nota tölvuna sem tæki í náminu. Lögð er rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að nemendur verði færir í að nota tölvuna sem tæki í náminu og samþætti kunnáttu í upplýsingatækni við framsetningu efnis við aðrar námsgreinar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu póst- og samskiptanetum
    • aðgerðir í helstu forritum til framsetningar og miðlunar á texta
    • textavinnslu og framsetningu texta
    • höfundarétti og notkun heimilda
    • siðfræði og siðferð Netsins (upplýsinga- og tölvusiðfræði)
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • markvissri notkun póst- og samskiptaneta
    • mótun og framsetningu á texta á ýmsan hátt og átti sig á læsileika hans
    • aðgerðum í helstu forritum hugbúnaðar, svo sem framsetningu og ritvinnslu
    • meðferð heimilda og framsetningu á þeim
    • öruggum netsamskiptum
    • sjálfstæðum vinnubrögðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta, varðveita, skapa og miðla upplýsingum og þekkingu á skipulagðan og skilvirkan hátt (upplýsingalæsi)
    • vinna að mótun texta á ýmsan máta og stuðlað að læsileika hans
    • setja upp heimildaritgerð ásamt yfirlitum af ýmsu tagi, s.s. efnisyfirliti, mynda- og töfluyfirliti
    • stunda örugg netsamskipti og sýni þar gott siðferði
    • vinna sjálfstætt að verkefnum
    Þekking: Verkefni sem unnin eru í kennslutímum og heima eru metin jafnt og þétt yfir önnina. Leikni: Áfanginn er símatsáfangi. Nemendur taka fjögur próf yfir önnina. Námsmatið tekur mið af ástundun nemenda, verkefnavinnu, rafrænum skilum á verkefnum og vegnu meðaltali einkunna úr prófum. Hæfni: Nemendur geti nýtt þá þekkingu og leikni sem þeir hafa aflað sér og sýni sjálfstæði í vinnubrögðum. Þeir lesi fyrirmæli og fylgi þeim. Þeir skrifi og tjái sig með eigin texta í ritvinnslu og framsetningarforritum. Þeir kunni skil á helstu grunnaðgerðum í forritun. Lögð er rík áhersla á að námið nýtist sem góður undirbúningur fyrir frekara nám eða störf.