Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1443190948.74

    Vinnuvernd og verkstjórn - slátraraiðn
    SLÁT2VV02
    17
    Slátrari
    Vinnuvernd og verkstjórn - slátraraiðn
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Markmið áfangans er að kynna nemendum mikilvægi heilsuverndar, vinnuvistfræði og verkstjórn á vinnustað. Í áfanganum er lögð áhersla á samspil vinnu og umhverfis við líkamlega, andlega og félagslega vellíðan starfsmanna. Nemendur kynnast hugtökunum áhættumat, vinnustaðaúttekt, líkamlegt álag, líkamsbeiting, forvarnir, vinnuvistfræði og vinnusálfræði. Farið er yfir lög og reglur um öryggismál, vinnuvernd, reglur og skyldur vinnuveitenda, verkstjóra og starfsmanna auk skráningaskyldu. Nemendur fá þjálfun í að takast á við félagslega þætti á vinnustað sem mögulega geta haft áhrif á heilsufar fólks. Farið verður í samskipti á vinnustað, samskiptastjórnun, að leysa úr ágreiningi og að takast á við einelti.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Lögum og reglum er gilda um vinnuvernd s.s skyldur og ábyrgð atvinnurekanda, verkstjóra og starfsmanna, eftirlit og upplýsingaskyldu.
    • Hugtökunum áhætta, áhættumat og forvarnir ásamt áætlunum og eftirfylgni.
    • Þeim félagslegu og andlegu þáttum á vinnustað sem geta haft áhrif á heilsu, vellíðan og afköst starfsfólks s.s einelti, streitu og álag og forvörnum.
    • Hvaða líkamlegu þættir á vinnustað geta haft áhrif á heilsu, vellíðan og afköst starfsfólks og forvarnir gegn þeim. t.d stoðkerfisvandamál.
    • Mikilvægi góðrar vinnuaðstöðu, lýsingar, hitastigs, loftgæða, hljóðvistar, hreinlætis og slysahættu.
    • Notkun vinnufatnaðar og persónuhlífa s.s eyrnahlífa, augnvarna og notkun á skóm. Skyldur starfsmanna og atvinnurekanda eru ræddar.
    • Hugtökum er tengjast mannlegum samskiptum s.s tjáskipti, samtalstækni, framkomu, hlustun, gagnrýni, hrós, baktal og ágreiningsmál.
    • Hvernig tekið er á ágreiningi á vinnustað og hann leystur.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Bregðast við líkamlegum einkennum og kvillum sem rekja má til vinnuaðstæðna og aðbúnaðar.
    • Greina hættur er stafa af ótryggu vinnuumhverfi og gáleysi í vinnubrögðum. Skrá og leita leiða til úrbóta í samvinnu við yfirmann.
    • Taka þátt í að beita raunhæfum aðferðum við lausn á ágreiningi.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Gera greinamun á heilsusamlegu og heilsuspillandi umhverfi hvað varðar aðbúnað og hollustuhætti og geta beitt sér fyrir umbótum og/eða tilkynnt til yfirmanns ef þurfa þykir.