Fjallað verður um leiðir til að efla persónulega hæfni nemenda til að takast á við áskoranir daglegs lífs. Farið er yfir grunnþætti í markmiðssetningu, slökun, hreyfingu og heilsurækt en einnig aðra þætti sem tengjast andlegu, líkamlegu og félagslegu heilbrigði. Nemendur læra að áttað sig á tengslum líkama og sálar og mikilvægi þeirra í daglegu lífi og fá einnig aukinn skilning á því hvernig streita, hugsanir og lífsstíll hafa áhrif á líkamlega og andlega heilsu.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tilgangi og uppbyggingu markmiðssetningar
mikilvægi slökunar
fjölbreyttum leiðum til að tileinka sér slökun
hlutverki góðrar líkamsbeitingar og -stöðu
streitu og næringu
möguleikum í umhverfi og náttúru til líkams- og heilsuræktar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja einstaklingshæfð markmið
nýta sér slökun
nota fjölbreyttar leiðir til að takast á við erfiðar aðstæður
nota aðferðir sem meta eigin styrkleika
nýta æfingar og hreyfingar sem stuðla að bættri líkamsbeitingu og -stöðu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér markmiðssetningu til að takast á við persónulegar áskoranir og leysa af hendi krefjandi verkefni daglegs lífs
þekkja eigin styrkleika
nýta tækifæri sem felast í slökun og nota til þess fjölbreyttar aðferðir
takast á við áskoranir daglegs lífs varðandi heilbrigðan lífsstíl.