Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1446045367.4

    Þjálfun og heilsa
    HEIL1HL03
    20
    heilsa, lífsstíll
    heilsa, heilsulæsi, líkamsrækt, þjálfun
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Áfanginn er bæði verklegur og bóklegur. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur taki þátt í alhliða líkams- og heilsurækt. Að nemendur taki þátt í mælingum á eigin líkamsfari og fái tækifæri til að skipuleggja eigin þjálfun. Farið er yfir helstu flokka næringarefna og mikilvægi rétts mataræðis fyrir líkamann. Einnig er skoðað hvaða skaðlegu áhrif áfengi, tóbak og vímuefni hafa á líkamann. Fjallað er um líkamlega, andlega og sálræna þætti sem skipta máli fyrir heilsu okkar og í framhaldi skoðað hvaða þýðingu það hefur að búa við góða heilsu.
    HEIL1ÞH03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi grunnþjálfunar, bæði fyrir daglegt líf og sem grunn fyrir frekari þjálfun
    • hugtökunum snerpa, hraði, samhæfing og tækni
    • mikilvægi hvíldar fyrir heilsuna og til að ná árgangri í íþróttum
    • hvernig meta megi eigin getu út frá mismunandi mælingum og nota niðurstöðurnar til að skipuleggja eigin þjálfun
    • hvernig eigi að skipuleggja þjálfun, allt frá langtímaáætlun niður í einn sértækan tíma
    • mikilvægi góðs mataræðis fyrir heilsuna og sem hluta af þjálfun
    • fæðuflokkunum og hvernig við getum nálgast helstu næringarefni
    • hvað felist í því að búa við góða félagslega og sálræna heilsu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota mismunandi þrek- og styrktarpróf til að meta eigin getu
    • skipuleggja eigin þjálfun yfir ákveðið tímabil og fara eftir henni
    • skoða eigið mataræði á gagnrýninn hátt og meta hvað sé í lagi og hvað megi fara betur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • breyta og bæta eigin lífsstíl
    Námsmat byggist á vinnubók sem nemendur skila, svo og á verkefnum og einu skriflegu prófi. Auk þess er mæting og virkni metin í verklegum tímum.