Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1446115977.95

    Endurvinnsla og endurnýting
    SMIÐ1EE05(11)
    None
    Smiðja
    Endurvinnsla og endurnýting
    í vinnslu
    1
    5
    11
    Í áfanganum er lögð megináhersla á endurvinnslu og endurnýtingu á öllum þeim hlutum sem nemendur vinna með. Samstarfs verður leitað við heimili og/eða fyrirtæki um að fá nytjavörur og endurnýta eða endurvinna þær. Áhersla er lögð á að nemendur yfirfari tæki og hluti sem þeir fá í hendur. Þau tæki og hlutir sem ekki er hægt að nota áfram eru tekin í sundur og flokkuð til endurvinnslu. Lagt er upp úr því að flokkunin sé í samræmi við reglur sem gilda um endurvinnslu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi endurvinnslu í tengslum við umhverfisvernd
    • virkni og tilgangi tækjanna/hlutanna sem unnið er með
    • hvaða verðmæti eru oft fólgin í gömlum tækjum/hlutum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • taka tæki og hluti í sundur og setja saman aftur
    • flokka tæki/hluti eftir tegundum, efni, notagildi og öðru sem áhersla er lögð á hverju sinni
    • beita verkfærum við endurnýtingu tækja/hluta
    • meta tæki og hluti út frá notagildi.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lagfæra ýmiss konar hluti og tæki ...sem er metið með... vinnusemi og frammistöðu í kennslustundum
    • leggja mat á notagildi ýmiss konar hluta og tækja ...sem er metið með... ýmiss konar verkefnum yfir önnina
    • auka færni sína til tjáningar á eigin skoðunum og samskipta við annað fólk ...sem er metið með... frammistöðu í kennslustundum og kynningarverkefnum
    • efla læsi á ýmiss konar upplýsingar, bæði í texta- og talnaformi ...sem er metið með... ýmiss konar verkefnum yfir önnina.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati sem byggir á því að nemandi fá með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvar hann stendur í náminu. Meðal námsmatsþátta eru skýrslur, kynningarverkefni og vinnubrögð.