Vélfræði fjórgengis vélhjóla kynnt. Fjallað um sambyggingu vélar, kúplingar og gírkassa í vélhjólum. Einnig fjallað um nokkur frávik frá þessari sambyggingu. Fjallað um mismunandi fjölda strokka og mismunandi byggingarlag vélanna. Fjallað um heiti og tilgang allra helstu íhluta vélanna þ.m.t. kúplingar og gírkassa. Ítarlega fjallað um vinnuhring, ventlatíma og stillingu kambástíma fjórgengisvéla í vélhjólum. Áhersla lögð á virkni sveifaráss, strokka og strokkloka vélanna. Fjallað um gerðir og virkni: kælikerfa, útblásturskerfa, eldsneytiskerfa og smurkerfa. Fjallað um þéttingar og samsetningu vélanna með áherslu á mikilvægi upplýsinga frá framleiðenda vélanna. Áhersla lögð á hreinlæti og vönduð vinnubrögð við alla vinnu við vélarnar. Fjallað um útreikning á rúmtaki og þjöppunarhlutfalli fjórgengisvéla.
Að minnsta kosti 5 einingar í vélfræði/vélstjórn
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu gerðum og uppbyggingu fjórgengisvéla í vélhjólum
vinnuhring vélanna
heiti og hlutverki einstakra vélarhluta þ.m.t. kúplingar og gírkassa
helstu gerðum eldsneytiskerfa vélanna
rúmtaki og þjöppunarhlutfalli vélanna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stilla kambástíma fjórgengisvéla
reikna rúmtak fjórgengisvéla
reikna þjöppunarhlutfall fjórgengisvéla
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra virkni og tilgang einstakra vélarhluta
lýsa vinnuhring, ventlatíma og stillingu kambáss (kambása) fjórgengisvéla
lýsa virkni einstakra vélarhluta og vélarinnar í heild
útskýra virkni mismunandi eldsneytiskerfa vélhjóla
útskýra rúmtak og þjöppunarhlutfall fjórgengisvéla
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.