Kennd uppbygging og virkni tvígengisvéla. Virkni breytilegra útblástursporta útskýrð. Fjallað um virkni smurolíunnar og mikilvægi þess að rétt magn sé notað af henni. Farið yfir helstu bilana þætti í tvígengisvélum og orsakir þeirra útskýrðar. Hlutverk kúplinga útskýrt. Farið í uppbyggingu mismunandi kúplinga og virkni þeirra skoðuð. Helstu bilana þættir skoðaðir sem og ástæður þeirra. Kynntur mismunandi drifbúnaður fjallað um uppbygging hans kosti og galla. Kennt umhirða og eftirlit með honum, hvernig slit sé athugað og hvernig sé brugðist við því. Fjallað um mismunandi útfærslur gírkassa. Grunn uppbygging gírkassa útskýrð og virkni þeirra sýnd. Útskýrð aflyfirfærslan yfir gírkassann.
VÉLV2FV03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu tvígengisvéla í vélhjólum
vinnuhring vélanna
heiti og hlutverki einstakra vélarhluta
uppbyggingu og hlutverki kúplinga
uppbyggingu og hlutverki mismunandi drifbúnaðar
uppbyggingu og hlutverki gírkassa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina bilanir í tvígengisvélum og ástæður þeirra
athuga slit og bregðast við því
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra virkni og tilgang einstakra vélarhluta
lýsa vinnuhring, tvígengisvéla
greina algengustu bilanir í tvígengisvélum og lagfært þær
útskýra virkni mismunandi gerðir kúplinga í vélhjólum
greina algengar bilanir í kúplingum og lagfæra þær
meta ástand mismunandi drifbúnaðar og lagfæra bilanir í honum
lýsa aflyfirfærslunni yfir gírkassa
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.