Farið ítarlega í uppbyggingu og virkni eldsneytiskerfa í vélhjólum allt frá tanki til og með blöndunga/innspýtingar. Farið í mikilvægi lofthreinsarans. Kenndar umgengniskröfur og nákvæmni við vinnu í eldsneytiskerfum. Kennt hvernig unnið er út frá upplýsingum framleiðanda við viðhald eldsneytiskerfa. Fjallað um mismunandi uppbyggingu ventlabúnaðar svo sem undirlyftustengur, kambása,vippuarma, vökvaundirlyftur o.fl. Farið yfir mismunandi drifbúnað kambása. Fjallað um mismunandi aðferðir við ventlastillingu.
VÉLV3SE03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu eldsneytiskerfa í vélhjólum
íhlutum (nöfnum og tilgangi) einstakra hluta í eldsneytiskerfum vélhjóla
kröfum um umgengni, hreinlæti og nákvæmni við vinnu í eldsneytiskerfum vélhjóla
mismunandi uppbyggingu strokkloka og ventlabúnaðar vélhjóla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma viðgerðir og stillingar á eldsneytiskerfum vélhjóla
framkvæma viðgerðir og stillingar á ventlabúnaði eftir upplýsingum frá framleiðanda
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta upplýsingar frá framleiðanda til að finna bilanir í eldsneytiskerfum vélhjóla
meta ástand ventlabúnaðar út frá upplýsingum framleiðanda
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.